Póstferð í hagléljum.
Jón sótti póst norður til Norðurfjarðar og fór með út á flugvöllinn á Gjögri um 13:25 í gær og beið þar eftir áætlunarvélinni til að taka póst sem kom að sunnan í hægri austlægri vindátt,en flugvélin kom um tvö leitið,síðan var farið til baka norður með póstinn og Edda og Jón sorteruðu póstinn að venju og þegar pósturinn var borinn úti í bíl var komið mikið él. Síðan hélt Jón til að dreifa póstinum á bæina,en voru él,en það var ekki fyrr enn komið var í Trékyllisvík að haglél dundu svo yfir bílinn og út Hraun og alla leið til Gjögurshálsa sem haglélin voru svo mikil og dimm,að eins og skotárás væri á bílinn,í verstu hryðjunum sem voru um þrjár, Jón stóð fastur á bremsunum í dimmistu éljunum og ,og gleymdi myndavélinni sem var í farþegasætinu fram í,til að taka mynd af höglunum gegnum gluggann á bílnum. Maður gleymir bara öllu undir svona aðstæðum nema að hugsa um sjálfan sig og farkostinn sinn,segir Jón. Jón Guðbjörn sem er veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík segist aldrei hafa séð önnur eins haglél fyrr á ævi sinni þótt hann hafi séð nokkuð stór haglél áður. Um leið og heim var komið var tilkynnt um þessi miklu haglél til spádeildar Veðurstofu og síðar í gegnum gagnabrunn Veðurstofu í skriflegu formi.
Þarna slapp flug rétt svo vegna veðurs eins og oft hefur skeð.