Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. júlí 2004

Morgunblaðið segir upp fréttariturum.

Morgunblaðið hefur nú sagt upp fjölda starfsmanna og þar á meðal mörgum fréttariturum í dreifbýlinu þar á meðal mér,ég er búin að vera fréttaritari fyrir Morgunblaðið frá árinu 1996 og verið duglegur að senda fréttir.Enn mest er sagt upp fréttariturum í fámennustu byggðalögunum sem mér finnst kjánalegt.Mér finnst Morgunblaðið ekki verða það landsbyggðablað á eftir sem ég hef talið það vera og þeir sjálfir á blaðinu hafa haldið fram,að byrta ekki fréttir úr fámennum sveitum eða byggðarlögum.Ég óska Morgunblaðinu alls hins besta í framtíðinni.
Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 8. júlí 2004

Vestfirskir kajakróðrarar á Ströndum.

Elín-Sveinbjörn-Sigurður-Örn og Halldór.
Elín-Sveinbjörn-Sigurður-Örn og Halldór.
1 af 2
Í gærkvöld komu hér inn á Ávíkina fimm kajakar undir stjórn fjögurra karla og einnar konu þáðu þaug smá veitingar hjá mér og héldu síðan áfram til Gjögurs og ötluðu að tjalda rétt hjá heita pottinum fyrir neðan flugvöllin.í dag var svo lokaferðin frá Akurvík til Djúpavíkur og þar yrði fólkið sótt á bíl og fara landleið vestur.
Að sögn Halldórs Sveinbjörssonar sem er ljósmyndari Bæjarins Besta og Morgunblaðssins fararstjóra fóru þaug frá Ísafyrði um síðustu helgi og komu víða við á Hornströndum enn í gær var áfanginn frá Drangavík Trékyllisvík Gjögur,smá bræla var hjá þeim í gær og í fyrradag.Þaug sem voru á ferð á kajjökunum eru:Elín Marta Eiríksdóttir,Sveinbjörn H Kristjánsson,Sigurður P Hilmarsson,Örn Torfason og Halldór Sveinbjörsson.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 5. júlí 2004

Farið á bát í Árnesey.

1 af 2
Nú í kvöld fór Íngólfur Benidiktsson bóndi í Árnesi með lömb fram í Árnesey fyrir Sigurstein bónda í Litlu-Ávík,enn móðir lambanna fannst dauð inn með Reykjarfirði í dag.Oft er farið með fé í Árnesey og farið með heimalinga fyrir bændur fyrir utan sem Árnesbændur láta fé í eina,allgóð grasspretta er þar yfirleitt enn nú hefur verið mjög þurrt í veðri.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 5. júlí 2004

Heyskapur hafin í Árneshreppi.

Heyskapur á Melum.
Heyskapur á Melum.
Um helgina byrjuðu Melabændur slátt þeir Björn Torfason og Kristján Albertsson og byrjuðu að rúlla og pakka í kvöld.Aðrir bændur eru að byrja líka fyrir alvöru að heyja og allt ætti að vera komið á fullt seinna í vikunni
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 2. júlí 2004

Víða sett upp skylti á sögulegum stöðum.

Sigursteinn og Valgeir við stauraskyltið
Sigursteinn og Valgeir við stauraskyltið
1 af 2
Nú í ár eins og í fyrra er verið að setja upp skylti sem vísa á og leiðbeina fólki á sögulega staði hér í hreppnum.Nú í dag setti Valgeir Benidiktsson þúsunþjalasmiður í Árnesi upp rekaviðarstaur sem í var skorið fyrir skilti sem segir frá Dugguholu og Þórðarhellir í Litlu-Ávíkulandi.
Dugguhola er hellisskúti sem sjór stendur upp í.Í brimi þá brýtur upp í hellinn og sjórinn lokar inni loft undir miklum þrýstingi sem síðan brýst út með dunum og dynkjum.Þjóðsagan segir að göng liggi úr Mýrarhnjúksþúfu undir Reykjaneshyrnu og út um Dugguholu.Tröllkona ein á að renna færi sínu niður um þessi göng og veiða fisk.
Þórðarhellir er lítill hellir í hömrum undir Reykjaneshyrnu.Í honum er sagt að sakamaður einn,Þórður að nafni hafi hafst þar við.Ein sagan seygir að það hafi verið Þórður sá sem brenndur var 1654 í Kistu og að hann hafi losað sig á bálkestinum og leyndst með reyknum í burtu.
Það tekur 2 til 3 klst.Að ganga alla leið í Þórðarhelli og til baka.
Svona er víða búið að setja upp skilti til upplýsinga fyrir ferðafólk,Landverd hefur drifið þetta áfram og Ferðamálaráð Vestfjarða með merkingar á þessum gönguleðum og við heimamenn.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 23. júní 2004

Vegagerðin með framkvæmdir.

Vegaframkvæmdir á Kjörvogsrima.
Vegaframkvæmdir á Kjörvogsrima.
Vegagerðin er nú að hækka vegin upp frá Gjögursafleggjara og langleiðina að Kjörvogi veginum er ýtt upp og keyrt í hann þetta er talsverð mikil upphækkun enn vegurinn var að verða niðurgrafinn framkvæmdir eru langt komnar.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 22. júní 2004

Ráðskona var í Litlu-Ávík um sauðburð.

Gunnur og Kolbrún.
Gunnur og Kolbrún.
Gunnur Salbjörg Friðriksdóttir var ráðskona hjá okkur hér í Litlu-Ávík frá 13 maí til 17 júní og hún leysti mig einnig af með veðrið meðan ég var fyrir sunnan.Gunnur er fyrrverandi starfsmaður Veðurstofunnar og hefur leyst mig af áður með veðrið. Sonardóttir hennar Kolbrún Andradóttir var líka um tíma hér og þótti gaman í sveitinni.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 22. júní 2004

Var í veikindafrýi í júní.

Ég fór suður 5 júní kom aftur heim 16 júní var í rannsóknum og myndatökum og beið eftir niðurstöðum enn er slæmur í hné liðþófi farin aðgerð seinna enn nóg um þetta.Skrifa svo þegar ég hef frá einhverju að segja.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 22. júní 2004

Smá yfirlit síðan ég gerði hlé á skrifum í maí.

Sauðburður var búin að mestu um 5 júní enn hér í Litlu-Ávík voru eftirlegukindur að bera til 17 júní og svipað annarsstaðar í hreppnum,kalt var framanaf enn um 20 mai var fé sett út jafnt og þétt og við hér keyrðum fé inn í Kúvikurdal þann 2 júní og aftur 4 júní og þá var verið að sleppa fé úr túnum.
Búið var að dreifa tilbúnum áburði á tún um miðjan júní
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 12. maí 2004

Veður kl 1800.

Norðvestan 2 m/s rigning skygni 12 km hiti 6 stig dálítill sjór.Yfirlit frá kl 0900:Úrkoma 10 mm HÁ 6 stig LÁ 4 stig.
Mun ekki skrifa veður á síðuna á næstunni bendi á veður á VEDUR.IS og TEXTAVARPI.Veður frá Litlu-Ávík eru send 5 sinnum á sólarhring sem hér segir:Kl-0600-0900-1200-1800 og 2100.

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Klætt þak 11-11-08.
  • Eyri við Íngólfsfjörð-24-07-2004.
  • Úlfar og Gulli fara á slöngubátnum út í Agnesi að ná í dráttartóg.
Vefumsjón