Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 11. desember 2010
Prenta
Aðventuhátíð Kórs Átthagafélagsins.
Vefurinn Litlihjalli vill minna lesendur sína á aðventuhátíð kórs Átthagafélagsins á morgun sem sagt var frá á dögunum,enn dagskráin er svo hljóðandi:
Aðventuhátíð Kórs Átthagafélags Strandamanna verður haldin sunnudaginn 12. desember kl. 16:30 í Bústaðakirkju. Stjórnandi kórsins er Krisztina Szklenár og einsöngvari á tónleikunum er Einar Clausen og píanóleikari Hafdís Pálsdóttir. Barnakórinn syngur undir stjórn Jensínu Waage og Elín Elísabet Jóhannsdóttir flytur hugvekju.
Glæsilegt kaffihlaðborð og mikil jólastemming. Miðaverð er 2.200 kr. fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn hátíðargesta 14 ára og yngri. Kórinn vonast til að sjá sem flesta á hátíðinni.