Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 4. apríl 2014 Prenta

Álftirnar kvaka.

Álftirnar í vörinni við Litlu-Ávík.
Álftirnar í vörinni við Litlu-Ávík.
1 af 2

Tvær Álftir eru komnar fyrir nokkru sem halda sig á Ávíkinni og synda þar fram og til baka og koma stundum alveg upp í vörina (lendinguna) og kvaka mikið. Þetta er alltaf viss vorboði þegar álfirnar eru mættar: Íslenskar álftir dvelja flestar á Bretlandseyjum  yfir vetrarmánuðina en kringum tíundi hluti hefur vetursetu á Íslandi aðallega á Suður-og Suðvesturlandi og Mývatni. Á Reykjavíkurtjörn eru einnig venjulega nokkrir tugir fugla. Álftin er með fyrstu farfuglum, þær fyrstu sjást yfirleitt á Suðausturlandi í byrjun mars. Álftir eru mjög áberandi fuglar enda alhvítar með svarta fætur og dökk augu. Kynin eru eins í útliti en karlfuglinn er þó stærri og þyngri. Goggurinn er svartur með gulri rót, langan, beinan háls, flatan búk og afturhallandi stél á sundi. Flugið er kröftugt með hægum og sterklegum vængjatökum. Hún teygir hálsinn beint fram á flugi en heldur honum lóðréttum á sundi. Til að hefja sig til flugs hleypur hún á vatninu enda mikill og þungur fugl. Segir í Frjálsa alfræðiritinu.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Samúel I Þórisson tengdasonur Maddýar heldur ræðu.
  • Óskar III ST 40-Gunnsteinn Gíslason.
  • Agnes ÍS kominn með allann flotann í tog og siglir fyrir Nestangann.
  • Litla-Ávík um miðja síðustu öld.Heyskapur í Stóru-Ávík á Naustavellinum við Ávíkurá.
  • Ásbjörn Þorgilsson grefur fyrir grunninum.22-08-08.
Vefumsjón