Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 9. október 2012
Prenta
Bændur þurfa lítið að fækka fé.
Bændur hér í Árneshreppi þurfa lítið að fækka fé vegna lítilla heyja tveir bændur fækkuðu eitthvað af fé,allavega fækkaði einn bær og fjármesti bóndinn um fimmtíu, sá bóndi keypti reyndar hundrað rúllur úr Miðdal hér innar í Strandasýslu á þrem bæjum þar,sem þíddi að þurfti ekki að fækka meir. Og á öðrum bæ var ekki sett á eins mikið af gimbrum og ætlað var,þannig að einhver fækkun er af vetrarfóðruðum kindum í hreppnum.; Engin bóndi,sem vefurinn hefur haft samband við,veit samt nákvæmlega hvað verður á fóðrum í vetur fyrr enn fé er tekið inn í haust,það er ekki víst að allt fé sem ætlunin var að setja á skili sér á hús þegar tekið er inn á hús seinna í haust. Enn í heildina verður mjög svipuð tala og síðastliðin vetur;. Enn lítil fækkun er samt staðreynd þrátt fyrir lítinn heyfeng í sumar,sem mest þurrkum er kennt um. Og einnig má geta þess að nokkrir bændir áttu góðar heybyrgðir frá því í fyrra og gátu þar með bjargað öðrum sem voru í sem mestum vanda með heyforða fyrir vetur næstkomandi.