Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 3. júlí 2011 Prenta

Búnaðarblaðið Freyja.

Síðsumars mun nýtt búnaðarblað hefja göngu sína.
Síðsumars mun nýtt búnaðarblað hefja göngu sína.
Síðsumars mun nýtt búnaðarblað hefja göngu sína. Blaðið hefur hlotið nafnið Freyja til heiðurs Frey sem gefin var út í rúm
100 ár þar til fyrir nokkrum árum síðan. Útgáfufélagið Sjarminn mun gefa blaðið út en að bak því standa Axel Kárason, Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir sem öll hafa numið landbúnaðarfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands og er áhugafólk um framþróun innlends landbúnaðar. Jafnframt sjá þau um ritstjórn blaðsins.

Í Freyju verður miðlað hagnýtu fræðsluefni tengdu landbúnaði. Fyrsta árið mun Freyja koma fjórum sinnum út á ári og verður efni hvers blaðs nokkuð tengt árstíðum hverju sinni. Ýmsir fastaliðir verða í blaðinu þar sem sögunni verða gerð skil sem og að skyggnst verður út fyrir landssteinana. Meginuppistaða hvers blaðs verður þó ætíð fræðsluefni þar sem fræðimönnum og ráðgjöfum á sviði landbúnaðar gefst kostur á að miðla fróðleik til lesenda blaðsins.

Að baki ritstjórn er ritnefnd sem í sitja Gunnar Guðmundsson, sviðstjóri hjá Bændasamtökum, Bjarni Guðmundsson, Landbúnaðarsafni Íslands, Emma Eyþórsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, Magnús B. Jónsson, nautgriparæktarráðunautur hjá Bændasamtökunum og Eiríkur Loftsson, ráðunautur hjá Leiðbeiningamiðstöðinni í Skagafirði.

Freyja verður fyrst og fremst veftímarit (www.sjarminn.is) þar sem lesendur geta nálgast blaðið án endurgjalds sem og að því verður dreift með tölvupósti til skráðra viðtakenda. Prentað eintak mun einnig standa til boða gegn greiðslu fyrir prentun og dreifingu.

Til að fá blaðið sent í tölvupósti þarf að skrá sig á póstlista með því að senda tölvupóst á netfangið sjarminn@sjarminn.is

Ef menn vilja prentað eintak þarf að skrá sig fyrir 30. júlí nk. með því að hafa samband við  Axel (860 2935), Eyjólf (862 0384) eða Gunnfríði (898 4897). Fyrsta blaðið mun kosta 1500 krónur plús sendingarkostnaður

Það er mat þeirra sem að blaðinu standa að mikil þörf sé á fagtímariti sem þessu innan landbúnaðargeirans þar sem áhersla er lögð á miðlun fagefnis og fræðslu á hagnýtan hátt. Það er því von þeirra að viðtökur íslenskra bænda og annars áhugafólks um innlenda landbúnað verði ánægjulegar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • 29-12-2010.Borgarísjakinn Jóli ca 8km A af Reykjaneshyrnu.Myndin tekin á Reykjanesi.
  • Fyrsti flotinn verður skilin eftir út á rúmsjó meðan að verða sóttar fleyri ferðir í fjöruna.
  • Naustvík 10-09-2007.
  • Skip á Norðurfirði.30-04-2006.
Vefumsjón