Eva Sigurbjörnsdóttir nýr oddviti Árneshrepps.
Í kvöld fimmtudaginn 19. júní hélt ný hreppsnefnd Árneshrepps sem kjörin var í sveitarstjórnarkosningunum þann 31. maí,sinn fyrsta fund. Aðalmál nýrrar hreppsnefndar var kosning nýs oddvita og vara oddvita. Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstýra á Hótel Djúpavík var kjörin sem nýr oddviti hreppsins og Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 sem vara oddviti. Aðrir í hreppsnefnd eru Guðlaugur Agnar Ágústsson bóndi á Steinstúni,Hrefna Þorvaldsdóttir húsmóðir og matráður Árnesi 2 og Elísa Ösp Valgeirsdóttir skólastjóri Árnesi 2. Þess má geta að Hrefna og Elísa eru mæðgur. Og þrjár konur skipa nú hreppsnefnd Árneshrepps og eru því í meirihluta.
Varamenn í hreppsnefnd Árneshrepps sem voru kosnir þann 31. maí eru þessir: Gunnar Dalkvist bóndi Bæ,Sveindís Guðfinnsdóttir bóndi og flugvallarvörður Kjörvogi,Bjarnheiður Júlía Fossdal húsmóðir og bóndi Melum 1,Ingvar Bjarnason bóndi og smiður Árnesi 2 og Pálína Hjaltadóttir húsmóðir og bóndi Bæ.