Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 21. ágúst 2024 Prenta

FJALLSKILASEÐILL FYRIR ÁRNESHREPP ÁRIÐ 2024.

Frá réttum. Myndasafn.
Frá réttum. Myndasafn.

Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í Árneshreppi árið 2024 á eftirfarandi hátt;

Leirarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði er í Melarétt 13. og 14.september 2024 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn 21.sepember 2024.

SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG:

FYRSTA LEITARSVÆÐI:

Leitardagar séu tveir.  Fyrri dagana 13. og 14.september, sé svæðið norðan Ófeigsfjarðar leitað eftir því sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið.  Seinasta daginn, laugardaginn 14.september 2024, sé fjalllendið austan Húsár leitað að Reykjarfjarðartagli um Sýrárdalog Seljaneshlíð.  Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadag og Eyrardal að Hvalhamri.  Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum. 

BJÖRN TORFASON Á MELUN 1 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI OG HUGA AÐ FYRIRSTÖÐU Á EYRI SEINNI DAGINN.

SVÆÐIÐ LEITI 14 MENN.  Þessir leggi til menn;

Egill Kristjánsson Melum 2………………………………………………………….2 menn

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík ……….…………………………………………1 mann

Valgeir Benediktsson Árnesi 2 …………………………………………………….1     “

Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 ……………………………………………………3 menn

Björn Torfason Melum 1 …………………………………………………………….6 menn

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík/Egill Kr. Melum 2……………………….1 mann

ANNAÐ LEITARSVÆÐI.: Leitin hefst við Naustvíkurgil og Búrfell laugardaginn 21.september 2024 milli þessara staða fram að Reykjarfjarðartagli og til sjávar í Reykjarfirði og síðan til Kjósarréttar og réttað þar.

INGÓLFUR BENEDIKTSSON ÁRNESI 2 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.

Svæðið leiti 16 menn. Þessir leggja til menn:

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík………….…………………………………………………………….. 2 menn

Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 ………………………………………………………………………….6 menn

Egill Kristjánsson Melum 2 …………………………………………………………………………………3 mann

Björn Torfason Melum 1 ……………………………………………………………………………………4 menn

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík og Ingólfur Árnesi 2…………………………………….…….1 mann

ÞRIÐJA LEITARSVÆÐI.

Leitin hefst við Búrfell, laugardaginn 21.september 2024.  Leitað verði fjalllendið frá Búrfelli út Kjósarfoldir, með Háafelli og til sjávar að Kleifará.  Féð verði síðan rekið til Kjjósarréttar og réttað þar.

BJÖRN TORFASON MELUM 1 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.

Svæðið leiti 10 menn.  Þessir leggi til menn:

Davíð Már Bjarnason Liltu-Ávík ……….………………………………………………………….. 1 mann

Björn Torfason Melum 1………………………………………………………………………………. 6 menn

Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 …………………………………………………………………….. 1 mann

Egill Kristjánsson Melum 2 …………………………………………………………………………….2 menn

Leitarmenn eru beðnir að hafa samband við leitarstjóra, hver á sínu svæði daginn fyrir leitardag.  Þar sem ekki er skipulögð leit á innsta afrétti hreppsins, þ.e. innan Kleifarár er því hér með komið á framfæri, að  sjálfboðaliðar eru vel þegnir til smölunar dagana áður en réttað er í Kjósarrétt.  Um óskilafé gilda venjulegar fjallskilareglur.

Norðurfirði 20.ágúst 2024,

Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti Árneshrepps.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« September »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Úr myndasafni

  • Mikil froða eða (sælöður),í Ávíkinni 10 setember 2012 í norðan brimi.
  • Veggir feldir.
  • Ísrek í Ávíkinni
  • Jakabrot við Árnesey 19-08-2004.
Vefumsjón