Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 25. janúar 2021
Prenta
Flug tókst í dag.
Flugfélaginu Norlandair tókst að fljúga í dag á Gjögur. Ekki hefur verið flogið síðan á fimmtudaginn 14 síðastliðinn. Reynt hefur verið að fljúga alla síðustu viku en ekki tekist vegna veðurs. Það komu vörur í verslunina og póstur með vélinni. Þetta var nú langþráð að fá vörur og póst eftir ellefu daga.
Núna í dag komu þeir hjá Norlandair á Twin Otter vél félagsins.