Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 12. maí 2017
Prenta
Flugi aflýst.
Flugfélagið Ernir hafa aflýst flugi til Bíldudals og Gjögurs í dag vegna veðurs. Norðaustan hvassviðri er og jafnvel stormkviður. Það átti að sameina þessi flug í dag. Flug til Gjögurs verður ekki fyrr en á þriðjudaginn 16 maí, en þá er næsti áætlunardagur. Ernir fljúga yfirleitt ekkert á laugardögum.