Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 29. mars 2019
Prenta
Flugi aflýst vegna snjókomu.
Flugfélagið Ernir hefur nú aflýst flugi til Gjögurs í dag vegna dimmviðris. Vestlæg vindátt var fram á hádegið en hægur vindur fyrst með éljum og síðan snjókomu frá því fyrir ellefu. Nú eftir hádegið á að ganga í norðaustan 8 til 13 m/s með éljum eða snjókomu. Þannig að þetta verður dimmviðri í dag. Næst verður athugað með flug á Gjögur mánudaginn 1 apríl.