Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 22. desember 2011
Prenta
Gott kvöld á Hólmavík.
Leikfélag Hólmavíkur sýnir leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur um hátíðirnar. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og eru leikarar alls 22. Flestir í leikarahópnum eru á grunnskólaaldri, en reynsluboltar úr leikfélaginu taka einnig þátt í sýningunni. Leikstjóri er Kristín Sigurrós Einarsdóttir á Hólmavík. Í leikritinu segir frá hugmyndaríkum strák sem er aleinn heima um kvöld með bangsa sér til halds og trausts, þegar pabbi skreppur að sækja mömmu. Ótal furðuskepnur koma í heimsókn, meðal annars hungurvofa og hrekkjusvín, hræðslupúki og letihaugur, þannig að stráksi og bangsi hafa í nógu að snúast. Leikritið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna árið 2008 sem besta barnaleikritið.
Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík 29. desember kl. 20:00. Aðrar sýningar eru 30. desember, 4. janúar og 6. janúar, alltaf kl. 20:00.