Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 26. apríl 2012
Prenta
Grásleppunni keyrt á Drangsnes.
Nú er skylda hjá öllum bátum sem stunda grásleppuveiðar að koma með allt að landi jafnt grásleppuna sjálfa sem og hrognin sem eru verðmætust og sem eiginlega eingöngu voru hirt hér áður fyrr. Allri grásleppu (hveljunni) er keyrt til Drangsnes þar sem Fiskvinnslan Drangur EHF kaupir grásleppuna af sjómönnum. Grásleppan er flutt í fiski körum á litlum sendibíl eftir þörfum til Drangsnes,Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði sér um þessa flutninga. Gunnsteinn Gíslason sér um að verka hrognin af þessum fjórum bátum sem gera út frá Norðurfirði.