Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 16. október 2012
Prenta
Haustball Átthagafélagsins.
Nú er komið að hinu árlega haustballi Átthagfélags Strandamanna. Dansleikurinn verður í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14, 2.hæð næstkomandi laugardagskvöld 20. október 2012. Þeir Ari Jónsson og Finnbogi Kjartansson sjá um að leika fyrir dansi gömlu og nýju danslögin frá kl 22:00 til kl 02:00. Miðaverðið er aðeins 2.000.- kr. Dustið nú af dansskónum. Félagsmenn fjölmennum og tökum með okkur gesti.