Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 3. mars 2022
Prenta
Hornbjargsviti komin út.
Veðurstofa Íslands er hætt að birta veðurupplýsingar frá sjálfvirkri stöð Vegagerðarinnar á Horni. Stöðin er búin að sýna vitlausan vindhraða í á þriðju viku. Árni Sigurðsson veðurfræðingur og mælasérfræðingur og eftirlitsmaður með mælum, segist ekki vita hvenær þetta kemst í lag aftur. Margir sjómenn voru búnir að kvarta við Veðurstofu og einnig við veðurathugunina í Litlu-Ávík. Þeir vissu sem var að Jón G Guðjónsson veðurathugunarmaður þar fylgist alltaf vel með. Stöðin á Horni kom síðast með skeyti klukkan 13:00 í dag.
Slóð á Hornbjargsvita er
hér.https://www.vedur.is/vedur/athuganir/kort/vestfirdir/#group=13&station=2862