Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 24. mars 2017 Prenta

Jarðarstund.

Ekki kveikja ljós á milli kl. 20:30-21:30 Þá er stund sem kallast Jarðarstund.
Ekki kveikja ljós á milli kl. 20:30-21:30 Þá er stund sem kallast Jarðarstund.

Á morgun þann 25. mars. nk. á milli kl. 20:30-21:30 er stund sem kallast Jarðarstund.  Markmið Jarðarstundar er að hvetja íbúa heims til aðgerða gegn loftlagsbreytingum með því að slökkva ljósin í eina klukkustund og sýna þannig fram á vitundarvakningu.

Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund skipulögðu Earth Hour í fyrsta sinn árið 2007 með því að ljósin voru slökkt í einni borg, Sydney í Ástralíu. Jarðarstundin á því 10 ára afmæli árið 2017. Í dag erum  7,000 borgir í 178 löndum sem hafa látið vita um þátttöku og er því  um að ræða eitt fjölmennasta samstillta einstaklingsátak á sviði umhverfisvakningar í heiminum. Flest sveitarfélög á Vestfjörðum ætla að taka þátt í Jarðarstund í ár en bæði einstaklingar, félög borgir og bæir geta tekið þátt og skráð viðburð á earhhour.org.

Allir eru hvattir til að taka þátt í Jarðarstundinni og kveikja ekki á rafmagnsljósum milli kl. 20:30 og 21:30 laugardaginn 25. mars. Njótum myrkurs, skoðum stjörnurnar og kveikjum svo á kertum og hugsum um hvað við getum lagt af mörkum til að bæta umhverfið og vinna gegn loftslagsbreytingum.

Orkubú Vestfjarða gegnir því lykilhlutverki að sjá um framkvæmdina f.h. sveitarfélaganna og verður þannig virkur þátttakandi í þessu skemmtilega verkefni.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Saumaklúbbur í Bæ þann 09-01-2009.
  • Allt sett í stóra holu.
  • Sigursteinn lagar spýtur til.Allt verður dregið upp með traktor seinna.
  • Flugstöðin Gjögurflugvelli.
Vefumsjón