Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. júní 2017
Prenta
Kaffi Norðurfjöður hefur nú opnað.
Þær stöllur Sara Jónsdóttir og Lovísa V Bryngeirsdóttir hafa opnað Kaffi Norðurfjörð þriðja sumarið í röð. Opnað var formlega þann fyrsta júní, og síðan var hreppsbúum boðið upp á rjómavöfflur sunnudaginn fjórða júní, en þær höfðu frestað því vegna veðurs áður. Opið er frá tólf til tuttugu og eitt. Þær segjast hlakka mikið til sumarsins framundan.