Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 14. janúar 2010
Prenta
Kræklingaeldið gengur vel í Steingrímsfirði.
Kræklingaeldi í Steingrímsfirði hefur gengið vel segir á Strandir.ís,og menn eru vongóðir um þennan vaxtarsprota og nýsköpun í atvinnulífi á Ströndum. Í haust var unnið við grisjun á kræklingnum sem áhöfnin á Grímsey ST-2 á Drangsnesi setti út sumarið 2008. Hefur áseta kræklingsins verið mjög góð og útlit fyrir 30 til 40 tonna uppskeru að ári ef áframræktunin tekst eins og reiknað er með. Allnokkur vinna er við grisjunina, þar sem kræklingurinn er tekin af söfnurunum og fluttur í land og flokkaður þar eftir stærð og settur í sokka. Síðan er honum komið aftur fyrir á línum þar sem hann verður næsta árið.
Þetta er eins og í búskapnum, lömbin fara á fjall á vorin og vonast menn eftir þeim aftur að hausti vænum og fallegum.
Þetta er eins og í búskapnum, lömbin fara á fjall á vorin og vonast menn eftir þeim aftur að hausti vænum og fallegum.
Á Grímsey ST-2 eru bræðurnir Friðgeir og Halldór Höskuldssynir ásamt Halldóri Loga Friðgeirssyni.
Þetta kemur fram á www.strandir.is