Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 14. nóvember 2013
Prenta
Lay Low á Mölinni.
Sunnudagskvöldið 24. nóvember næstkomandi mun Lay Low koma fram í tónleikaröðinni Mölinni á Drangsnesi. Lay Low
þarf vart að kynna fyrir fólki enda hefur hún fyrir löngu síðan vakið landsathygli fyrir einstaka hæfileika sína,
frábærar lagasmíðar, þróttmikinn hljóðfæraleik og silkimjúka söngrödd. Lay Low gaf á dögunum út sína fjórðu breiðskífu sem ber heitið "Talking About the Weather". Á nýju plötunni svífur andi sveitarinnar yfir,en Lovísa fluttist nýverið frá borginni suður
á land þar sem hún hafði áður búið. Heimkoman í sveitina,friðurinn og kyrrðin,æskan og sjálfstæðisbarátta listakonunnar urðu því nokkuð óvænt yrkisefni plötunnar þar sem áður ótroðnar slóðir eru fetaðar.
Á tónleikunum á Drangsnesi mun Lay Low njóta fulltingins gítarleikarans Birkis Hrafns Gíslasonar og munu þau flytja lög af nýju plötunni í bland við eldra efni. Tónleikarnir fara fram á veitingahúsinu Malarkaffi. Húsið opnar kl.20:00 og venju samkvæmt mun Borko hefja leikinn um hálftíma síðar. Miðaverð er 2000 kr