Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. apríl 2013
Prenta
Mjaldur við Bassastaði.
Mjaldur var að damla við Bekkina á Bassastöðum í morgun um tíu leitið að morgni kjördags voru þessar myndir teknar en þá var hann að leggja af stað að kjósa á Drangsnesi en líklega verður hann að kæra sig inn á kjörskrá því ekki var tekið eftir honum þar við yfirferð sveitarstjórnar fyrir skömmu,hann er bæði þéttur á velli og sakleysislegur og svipar mjög til Sigmundar Davíðs enda lét hann ekki myndasmiðinn hafa nein áhrif á stefnuna hélt bara sínu striki einbeittur hvernig sem að honum var sótt. Mjaldurinn er mjög sjaldséður við Ísland heldur sig mest í norður Íshafinu enda vel feitur en fitan er líklega um 40 prósent af þunga dýrsins. Myndirnar tók Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum.