Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 11. janúar 2012
Prenta
Mokað Norðurfjörður-Djúpavík.
Byrjað var snemma í morgun að moka frá Trékyllisvík til Norðurfjörðar og til baka til Gjögurs og inn með Reykjarfirðinum og til Djúpavíkur. Sumstaðar hefur skafið talsvert í þar sem snjór náði að tolla þar sem myndast skjól í veðurofsanum í gær. Gífurleg hálka er á vegum mjög þykk svell víða,reynt er að moka vel uppí efri kantinn í gamla snjóinn til að hafa hjólfar því ekki er eins sleipt þar í snjónum,en annað hjólið er alltaf á svelli. Ekkert verður flogið í dag á Gjögur en flogið verður á morgun sem er áætlunardagur.