Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 22. mars 2017 Prenta

Ómskoðun- fósturvísar taldir.

Guðbrandur Þorkelsson við fósturtalningu.
Guðbrandur Þorkelsson við fósturtalningu.
1 af 3

Í gær var verið að ómskoða fé hjá bændum í Árneshreppi á fjórum bæjum af fimm sem eru með fjárbúskap. Það er á Melum, Steinstúni, Árnesi og í Litlu-Ávík, Kjörvogs bændur hafa aldrei látið ómskoða. Ómskoðunin er til að telja fósturvísa í ám til að vita hvaða ær verði tvílembdar eða einlembdar og jafnvel þrílembdar  eða hvað er mikið gelt, á komandi vori í sauðburðinum. Við talninguna  er  notuð ómsjá. Guðbrandur  Þorkelsson bóndi  að Skörðum í Dalasýslu sá um ómskoðunina eða talninguna. Guðbrandur vinnur mikið við þetta í sinni heimasveit og víðar. Ljóst er að með slíkri talningu  er hér á ferðinni tækni sem fyrir fjölmörg fjárbú sýnist vera ákaflega áhugaverð til að nýta. Augljósustu nýtingamöguleikar tengjast skipulagningu fóðrunar á síðari hluta meðgöngutíma ánna auk þess sem að slík vitneskja á víða að geta skapað mikla möguleika til að skipuleggja alla vinnu á sauðburði. Þetta er sjöunda árið í röð sem bændur hér í Árneshreppi láta ómskoða til að telja fósturvísa.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Ásdís Thoroddsen bílstjóri og fararstjóri ásamt 11 erlendum ferðamönnum og Sigursteini í Litlu-Ávík.07-07-2011.
  • Borgarísjakabrot útaf Krossnesi 23-09-2001.
  • Árnesstapar-06-08-2008.
Vefumsjón