Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 2. júlí 2013
Prenta
Óvíst með malbikun á Gjögurflugvelli.
Öllum tilboðum var hafnað. Ekki eru nægar fjárveitingar til að taka svona háum tilboðum. Óráðið er hvað verður gert í framhaldinu, það er alfarið á hendi innanríkisráðuneytisins,“ segir Friðþór Eydal talsmaður Isavia við BB.is í morgun, en þrjú tilboð bárust í klæðningu flugbrautarinnar á Gjögurflugvelli. Lægsta tilboðið var frá Skagfirskum verktökum ehf. og hljóðaði upp á tæpar 80 milljónir króna. Borgarverk ehf. bauð einnig í verkið, annars vegar 96,5 milljónir og hins vegar 85,5 milljónir, en það tilboð miðaðist við breyttan verktíma. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 54,5 milljónir króna. Verklok voru áætluð í september.
Þetta kemur fram í frétt á bb.is.
Þetta kemur fram í frétt á bb.is.