Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 10. janúar 2013 Prenta

Rafmagnið hækkar enn.

Orkubú Vestfjarða á Hólmavík.
Orkubú Vestfjarða á Hólmavík.
Verðskrá Orkubús Vestfjarða fyrir raforkudreifingu var hækkuð um 4% nú um áramótin, tengigjöld rafmagns voru einnig hækkuð um 4%. Hækkunin er tilkomin vegna almennra verðlagshækkana á árinu 2012.

Orkustofnun, sem fer með eftirlitshlutverk með tekjumörkum flutnings- og dreifiveitna, hefur yfirfarið hækkunina og staðfest að hún sé innan tekjuheimilda sem Orkubú Vestfjarða hefur. Árið 2011 var verðskrá OV fyrir dreifing raforku í þéttbýli um 4% undir settum tekjumörkum (þ.e. mátti vera 4% hærri til tekjumörkum væri náð) og um 9% undir settum tekjumörkum í dreifbýli. Þá hefur iðnaðarráðuneytið staðfest hækkun á verðskrá OV fyrir hitaveitur og auglýst hana í stjórnartíðindum.

Iðnaðarráðuneytið hefur auglýst niðurgreiðslur á orku til hitunar íbúðarhúsnæðis sem taka gildi nú um áramótin. Niðurgreiðslur til rafhitunar á veitusvæði Orkubús Vestfjarða hækka úr 4,32 kr/kWst í 4,99 kr/kWst í dreifbýli og úr 2,87 kr/kWst í 3,30 kr/kWst í þéttbýli. Nú um áramót hækkar sérstakur skattur af seldri raforku úr 0,12 kr/ kWst í 0,126 kr/ kWst. Verðskrá fyrir raforkusölu er óbreytt. Segir í tilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða. Nýjar verðskrár má finna á www.ov.is.

Athugasemdir

Atburðir

« 2025 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Úr myndasafni

  • Ægir Thorarensen kemur á Agnesi Guðríði ÍS-800.
  • Margrét S Nielsen og Sveinn Sveinsson vertar í Kaffi Norðurfirði.12-03-2012.
  • Borgarísjaki Vestur af Sæluskeri. 27-08-2018.
Vefumsjón