Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 10. desember 2019 Prenta

Rafmagnstruflanir.

Ljósavél.
Ljósavél.

Rafmagnstruflanir hafa verið hér í Árneshreppi síðan klukkan þrjú í dag. En fyrir fimm er búið að vera rafmagnslaust, en kemur blikk þegar reynt er að setja rafmagn inn. Orkubúsmenn á Hólmavík segja að það gæti verið laust í einangrara í staur, en ekki vitað, rafmagn tollir ekki inni þegar reynt er að setja það inn. Það hefur verið slæmt hitastig fyrir línur, hiti fyrr í dag um 2 stig og slydda og núna komið undir frostmark.

Keyrð er vél hér á veðurstöðinni í Litlu-Ávík til að hafa net og tölvu í gangi til að senda veðurupplýsingar.

Ps: Rafmagn kom á aftur nú kl: 18:13 í bili. Þannig að það er ekki slitið.

Uppfært kl. 19:15: Rafmagnið er alltaf að koma og fara.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Janúar »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Það stærsta og besta af viðnum verður tekinn.
  • Gíslína-Júlíana-Villi-Eysteinn og Jenssína.
  • Svalahurð,18-11-08.
  • Einn flotinn er komin vestur fyrir Lambanesið.
  • Úr sal.
Vefumsjón