Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 17. september 2011
Prenta
Réttað í Melarétt.
Í gær var leitað norðan Ófeigsfjarðar eins og þurfa þótti og var komið til Ófeigsfjarðar um kvöldið og fé haft þar í rétt eða girtu hólfi yfir nóttina.Í dag var leitað frá Ófeigsfirði og með sjó til Ingólfsfjarðar og fjalllendið austan Húsár að Reykjarfjarðartagli ,og féð rekið til Melaréttar og var réttað þar um miðjan dag í mjög fallegu veðri,leitarmenn fengu reyndar hið besta veður báða dagana.Leitarstjóri var Björn Torfason bóndi á Melum 1.