Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 14. mars 2015 Prenta

Rok- Ofsaveður.

Mikil svell þarf að fara yfir til að lesa af hitamælum í Litlu Ávík sem er við ljósastaurinn.
Mikil svell þarf að fara yfir til að lesa af hitamælum í Litlu Ávík sem er við ljósastaurinn.
1 af 2

Veður hefur verið þannig á veðurstöðinni í Litlu-Ávík á Ströndum í morgun og sem af er degi. Klukkan sex var veðrið þannig:Suðsuðaustan 17 m/s upp í 22m/s í kviðum. Og kl:09:00 var það þannig SSA 18 m/s og í kviðum í 23 m/s. Og klukkan tólf á hádegi var það þannig: Sunnan 26 m/s og kviður í 43 m/s. Ekki hefur verið mikil úrkoma í þessu en stundum talsvert um skúrir. Hiti hefur verið sex til níu stig. Enn frá klukkan um 12:30 og fram til 14:00 var veðrið verst hér og var þá jafnvindum komin í 31 m/s  af suðri og kviður í 47 m/s. Veður fór síðan að ganga eitthvað niður nú fyrir og um klukkan tvö í dag. Eins og Veðurstofan spáði fyrir um. Veðurfræðingur á vakt Teitur Arason hjá Veðurstofu Íslands  segir þetta vera sennilega eitt versta sunnan veður sem komið hefur síðan 2007.

Vindurinn skefur upp jarðveg,grasrót,möl,og skarna og jafnvel klakastykki,menn eru mest hissa á því að rúður skuli ekki brotna eða eitthvað að láta undan í þessum ofsa í dag. Fréttamaður hefur ekki frétt af neinu tjóni enn í þessu veðri.  Miklar rafmagnstruflanir hafa verið frá því snemma í morgun,enn frá því fyrir hádegi hefur rafmagn verið stöðugt.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Ísjakinn 28-09-2017.
  • Borgarísjakinn 27-09-2017.
  • Seð yfir Trékyllisvík Litla-Ávík næst.
  • Axelshús Gjögri-05-07-2004.
  • Borgarísjaki sést frá Litlu-Ávík. 26-09-2017.
  • Kort Árneshreppur.
Vefumsjón