Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 13. janúar 2013 Prenta

Saumaklúbbarnir byrjaðir.

Konurnar í saumaklúbbnum í gærkvöldi.
Konurnar í saumaklúbbnum í gærkvöldi.
Í gærkvöld var saumaklúbbur á Krossnesi hjá Oddnýju Þórðardóttur og Úlfari Eyjólfssyni. Þetta var fyrsti klúbbur vetrarins. Saumaklúbbarnir í Árneshreppi eru sérstakir að því leyti að karlmönnum er boðin þátttaka einnig,og spila annað hvort bridds eða vist,eða jafnvel tekin skák ef þannig stendur á fjölda við spilin. Þá eru konur við sauma eða aðra handavinnu. Þessir klúbbar eru búnir að tíðkast til margra áratuga og á meðan fleira fólk var í sveitinni voru klúbbarnir tvískiptir,það er klúbbar voru haldnir bæði í norðurhluta hreppsins og austari hlutanum þá ver skipt við Melabæina. Oftast koma allir sem geta og eiga heimangegnt,ungir sem aldnir. Klúbbarnir hefjast yfirleitt í janúar og standa fram á vor,og eru yfirleitt haldnir á tveggja vikna fresti,en annars fer það líka eftir veðri og færð. Þetta er eitt af því fáa sem gert er hér í þessari fámennu sveit Árneshreppi til að koma saman. Alltaf eru veisluborð hjá þeim konum sem halda saumaklúbbana í lok samkomunnar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Stærra brotið úr jakanum í fjörinni.18-12-2010.
  • Flatur ísjaki frekar lár sést frá Litlu-Ávík, er um það bil 5 til 6 Km austur af Sæluskeri Og um 20 Km frá landi. 13-06-2018.
  • Mikil froða eða (sælöður),í Ávíkinni 10 setember 2012 í norðan brimi.
  • Sigursteinn hifir plötur á þak,á þaki eru-Gulli Hrafn og Íngólfur.
Vefumsjón