Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 28. september 2011
Prenta
Selur á skeri.
Nú á dögunum þegar fréttamaður Litlahjalla var á ferðinni í Reykjarfirði um leitirnar og þegar réttað var í Kjósarrétt,sást selur í makindum á skeri innarlega í Reykjarfirði og lá hann í makindum sínum og rétt lyfti haus þegar kallað var til hans og þegar heyrðist í mölinni undan fótum manna.Það var útilokað að fá hann til að fara af skerinu til að synda í spegil sléttum sjónum..En hér eru tvær myndir af Kobba kallinum.