Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 15. júní 2018
Prenta
Snjóaði í fjöll í nótt.
Norðan garri hefur verið í gær og sem er af morgni, það er kaldi eða stinningskaldi. Það snjóaði talsvert í fjöll í nótt alveg niður fyrir tvö hundruð metra. Hitinn á veðurstöðinni í Litlu-Ávík fór niður í 2,4 stig í nótt, og er þetta kaldasta nóttin sem af er júní mánuði.