Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 28. nóvember 2013
Prenta
Söfnuðu fyrir Elsu og Ásgeir.
Konurnar í Árneshreppi tóku sig saman og héldu tombólu og kaffisölu í félagsheimilinu laugardaginn 23. nóvember . Ágóðinn rann til styrktar Elsu Borgarsdóttur og Ásgeirs Hólm Agnarsdóttur. Vinir og vandamenn Vestfirðinganna Elsu Borgarsdóttir og Ásgeirs Hólm Agnarssonar á Ísafirði hafa hrundið af stað styrkarsíðu á Facebook fyrir þau hjónin en hjá þeim eru erfiðir tímar framundan. Elsa hefur verið greind með illkynja brjóstakrabbamein og Ásgeir hefur verið óvinnufær af völdum vinnuslyss og veikinda í mörg ár. Ljóst er að, ofan á veikindi þeirra beggja, leggjast nú fjárhagsáhyggjur og því stofnuðu Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir frænka Ásgeirs og Berglind Friðriksdóttir hálfsystir hans styrktarsíðu fyrir þau. Styrktarsíða Elsu Borgarsdóttir.