Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 1. október 2009
Prenta
Halldór Halldórsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, setti Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2009 á Hilton Nordica hóteli í morgun. Í lok setningarræðu sinnar brýndi formaðurinn sveitarstjórnarmenn til þess að þétta raðirnar á ráðstefnunni: "Verkefnin eru næg og við göngum til þeirra af vinnugleði og vissu um gagnsemi þeirra fyrir íbúa landsins. Það er full ástæða til þess að líta til sveitarfélaganna og árangurs þeirra við erfiðar aðstæður. Þau leita allra leiða til að finna nýjar leiðir í samstarfi við atvinnulífið. Tækifærin eru fjölmörg og aldrei hefur verið mikilvægara að nýta þau í þágu þjóðarinnar."
Ræðu Halldórs má sjá í heild hér
Tækifærin eru fjölmörg.
Ræðu Halldórs má sjá í heild hér