Uppbyggingarsjóður Vestfjarða.
Nú hefur verið stofnaður nýr Uppbyggingarsjóður Vestfjarða sem rekinn er innan vébanda Sóknaráætlunar landshlutans og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga. Sjóðurinn tekur við hlutverki Menningarráðs Vestfjarða og Vaxtarsamnings Vestfjarða og veitir styrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar- og nýsköpunar.
Uppbyggingarsjóður er hluti af samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 sem undirritaður var 10. febrúar 2015. Í vor verður í fyrsta skipti úthlutað úr sjóðnum og er umsóknarfrestur til og með 30. apríl. Til ráðstöfunar í úthlutun eru um það bil 60 milljónir að þessu sinni, sem er svipuð upphæð og úthlutað var á grundvelli menningar- og vaxtarsamninga á síðasta ári.
Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.
Nýbreytni er að hægt er að sækja um stærri styrki til lengri tíma en áður, allt að þremur árum. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarrreglum á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is.
Samþykkt hefur verið að árið 2015 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða:
Nánar hér: