Veðrið í Apríl 2014.
Yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík.
Mánuðurinn byrjaði á rólegu nótunum,með hægviðri og þoku eða þokulofti,en þokuloft var oft fyrstu átta daga mánaðar. Þann 10 var komin norðan með snjókomu eða éljum. Síðan hægviðri í tvo daga. Eftir það voru umhleypingar sem stóðu fram á páska. Loks þann 21. gerði hægviðri,breytilegar vindáttir og hlýnandi veðri,og var hlítt yfir daginn,og var þetta góða veður í fimm daga. Þann 26.,gerði ákveðna norðan og norðaustanátt með kólnandi veðri og var kalt í veðri það sem eftir lifði mánaðar. Þokuloft í fyrstu og síðan él,enn síðan þurru veðri. Úrkoman var í lægri kantinum í mánuðinum.
Tvívegis gerði suðvestan hvassviðri eða storm í mánuðinum,fyrst þann 15. Þá náði vindur 60 hnútum eða 31 m/s í kviðum sem er ofsaveður. Aðfaranótt 18. og fram á miðjan dag var seinna hvassviðrið,þá náði vindur í kviðum 39 m/s sem er yfir fárviðrismörk. Engin tjón urðu í þessu veðri.
Yfirlit dagar eða vikur: Nánar hér.