Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 1. júlí 2014
Prenta
Veðrið í Júní 2014.
Yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík.
Mánuðurinn byrjaði með hafáttum norðan og norðvestanáttum,með hægum vindi en mikið um þokuloft og súld og fremur köldu veðri til 11. Þann 12. fór að hlýna í byli með hægviðri og þokuloftið hopaði í bili. Loks þann 16. gerði suðvestanáttir sem stóð í fjóra daga,með hlýju veðri og smá vætu. Aftur gekk í hægar hafáttir þann 20. með viðkomandi þokulofti og smá súld með köflum,sem stóð til 24. Eftir það voru breytilegar vindáttir og síðan suðlægar vindáttir út mánuðinn. Hægviðrasamt var allan mánuðinn og úrkomulítið. Heyskapur byrjaði óvenju snemma þetta sumarið í Árneshreppi vegna óvenju góðs veðurfars.
Yfirlit dagar eða vikur: Nánar hér yfirlit yfir veðrið.