Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 20. desember 2013
Prenta
Vegur opnaður.Flug í dag.
Vegagerðin er að opna veginn norður í Árneshrepp,búið er að moka frá Norðurfirði til Gjögurs og er verið að opna til Djúpavíkur norðan megin frá. Talsvert snjóaði í gær og í gærkvöldi og mikill skafrenningur var fram á morgun í hvassri suðvestanátt. Flug verður á áætlun í dag,enn ekki var hægt að fljúga í gær vegna veðurs.