Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 10. til 17. okt. 2011.
Í liðinni viku voru fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum. Fimmtudaginn 12. okt. urðu tvö óhöpp, það fyrra varð á Flateyrarvegi, þar hafnaði bifreið út fyrir veg, ekki slys á fólki og ekki miklar skemmdir á bílnum. Þann sama dag var ekið á tengikassa frá Orkubúinu á Hólmavík og daginn eftir var aftur ekið á tengikassa, í báðum þessum tilfellum urðu skemmdir á viðkomandi tengikössum. Þá varð minniháttar óhapp á Ísafirði þann 14. okt, þar var bakkað á bifreið.
Færð á vegum síðustu daga hefur ekki verið góð og fjallsvegir illfærir, um liðna helgi varð Hrafnseyrarheiði ófær vegna snjóflóða og þurftu björgunarsveitarmenn frá Þingeyri að fara vegfarendum á Hrafnseyrarheiði til aðstoðar. Þá þurftu björgunarsveitarmenn frá Barðaströnd að fara vegfarendum, sem voru í vandræðum á Klettshálsi, til aðstoðar og komu fólkinu til byggða.
Enn og aftur vill lögregla benda vegfarendum á að kynna sér aðstæður áður en lagt er í langferð á þessum tíma árs, þegar allra veðra er von, kynna sér veðurspá og færð áður en lagt er af stað. Í þessu sambandi má benda á upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777/1779, þar geta vegfarendur fengið upplýsingar um færð og veður.
Þá vill lögregla benda eigendum/umráðamönnum ökutækja á að búa bifreiðar sína eftir aðstæðum, huga að dekkja og ljósabúnaði áður en lagt er af stað í langferðir.Segir í frétt frá lögreglunni.