Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 21. desember 2009 Prenta

Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 14 des til 21 des. 2009.

Fimm voru stöðvaðir í nágrenni Hólmavíkur,sá sem hraðast ók var á 114 km/klst.
Fimm voru stöðvaðir í nágrenni Hólmavíkur,sá sem hraðast ók var á 114 km/klst.

Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunni sem leið.  Þriðjudaginn 15 des ók bifreið á grjót á Óshlíðarvegir, minni háttar skemmdir á bílnum og laugardaginn 19 des var bifreið ekið á ljósastaur á Hnífsdalsvegi, einhverjar skemmdir á bílnum, ekki slys á fólki.

Þá voru 6 teknir fyrir of hraðan akstur í vikunni.Einn var stöðvaður á Skutulsfjarðarbraut og mældist hann á 95 km/klst, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km/klst.Þá voru fimm stöðvaðir í nágrenni við Hólmavík og sá sem hraðast ók, var mældur á 114 km/klst. þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.  Vill lögregla benda ökumönnum á að á þessum árstíma eru aðstæður til aksturs mjög misjafnar og breytast fljótt, hálka getur myndast á mjög stuttum tíma og enn og aftur vill lögregla benda ökumönnum og umráðamönnum ökutækja á að fylgjast með ljósabúnaði bifreiða sinna og lagfæra strax þegar ljós vantar.

S.L.Þriðjudag var tilkynnt um þjófnað úr vélbátnum Séra Jóni ÍS,þar sem báturinn stóð upp á landi í Sundahöfn við Eimskip á Ísafirði.Umræddur bátur stóð þar í tvo mánuði og var stolið úr honum rafmagnstækum, siglingatækjum, dýparmæli og fl.Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið í máli þessu, eða grunsamlegar mannaferða við bátinn á umræddi tímabili vinsamlegast hafi samband við lögregluna á Vestfjörðum Ísafirði, sími 450-3730

Rætt var við nokkra ökumenn vegna ljósabúnaðar og enn og aftur vill lögregla brýna fyrir ökumönnum að hafa ljósabúnað bifreiða sinna í lagi og ekki sakar að mynnast á að ökumenn skafi af rúðum bifreiða sinna áður en lagt er af stað, eitthvað er um það að menn trassi þetta.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Súlan sem er 18,5 m löng komin á flot.
  • Jakar útaf Litlu-Ávík togari á leið vestur.
  • Veiga í Íngólfsfirði talar við ferðahópinn.
Vefumsjón