Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 19. nóvember 2013
Prenta
Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum 11.nóv til 18.nóv 2013.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku, báðir á Djúpvegi, þjóðvegi nr. 61. Sunnudaginn 17.nóv.var tilkynnt um umferðarslys á Barðastrandarvegi / Kleifaheiði,þar voru erlendir ferðamenn á bílaleigubíl,sem hafnaði út fyrir veg og valt nokkrar veltur. Mildi að þar varð ekki stórslys,bifreiðin hafnaði eina 50 metra niður fyrir kant,farþegi í bílnum náði að komast út,en ökumaður var fastur í bílnum,tækjabíll og sjúkrabíll sendur á staðinn og greiðlega gekk að ná ökumanni út og var hann fluttur á
helsugæslustöðina á Patreksfirði til aðhlynningar,sem betur fer reyndist ökumaður ekki alvarlega slasaður. Tildrög óhappsins voru aðstæður á vettvangi,hálka og snjór. Bifreiðin er mjög mikið skemmd. Nokkrir ökumenn / umráðamenn voru boðaðir með ökutæki sín til skoðunar í vikunni,þá voru nokkrir aðilar kærðir vegna lagningar ökutækja.