Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 6. maí 2014 Prenta

Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum: 28. apríl til 05. maí 2014.

Lögregla vill koma á framfæri til foreldra og forráðmanna þeirra,að þau noti reiðhjólahjálma.
Lögregla vill koma á framfæri til foreldra og forráðmanna þeirra,að þau noti reiðhjólahjálma.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu í liðinni viku, þar var um að ræða bifreið sem hafnaði út fyrir veg á þjóðvegi nr. 63. Bíldudalsvegi á Trostansfjarðarfjalli, þar voru erlendir ferðamenn á ferð. Bifeiðin óökuhæf og ekki slys á fólki. Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur innabæjar á Ísafirði. Tvær kærur um líkamsárásir bárust lögreglu í liðinni viku og eru þær til rannsóknar. Einn ökumaður var kærður vegan gruns um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna.

Tvær tilkynningar bárust lögreglu um sinueld í vikunni í öðru tilvikinu var um að ræða sinueld í Arnarfirði og í hinu tilfellinu var um að ræða sinueld á Snæfjallaströnd, mannviki voru ekki í hætti, en rétt að árétta að algerlega er bannað að brenna í sinu eftir 1. maí.

Þá vill lögregla kom á framfæri til foreldra og forráðamanna barna og unglinga gildi þess að nota reiðhjólahjálma þar sem það á við.

Athugasemdir

Atburðir

« 2025 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Úr myndasafni

  • Þórólfur-Mundi-Úlfar og Pétur.
  • Jón Guðbjörn og Guðrún smelltu af samtímis.Og þetta varð útkoma Jóns G.
  • Borgarísjakar útaf Felli 07-04-2004.
  • Mundi og Björn fara að setja lista í loft:19-02-2009.
  • Finnbogastaðir að NA verðu.04-04-2009.
  • Bílskúrshurðin komin í,20-11-08.
Vefumsjón