Auglýst hefur verið eftir félagsmálastjóra á Ströndum og Reykhólahreppi.
Sveitarfélögin Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Reykhólahreppur auglýsa nýtt og spennandi starf sameiginlegs félagsmálastjóra laust til umsóknar. Sveitarfélögin bjóða upp á heillandi mannlíf, einstaka náttúrufegurð og fjölbreytt starfsumhverfi. Um er að ræða 70% starf með möguleikum á viðbótarverkefnum hjá sveitarfélögunum.
Helsta starfssvið félagsmálastjóra:
Almenn fagleg félagsleg ráðgjöf
Yfirumsjón með málefnum fatlaðra
Móttaka og úrvinnsla á umsóknum um fjárhagsaðstoð
Mannaforráð og skipulag félagslegrar heimaþjónustu
Forvarnir, fræðsla og samskipti við íbúa í sveitarfélögunum
Önnur málefni félagsþjónustu sem upp koma á svæðinu
Hæfniskröfur:
Félagsráðgjöf, þroskaþjálfun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða sambærilegum störfum mikilvæg
Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulagshæfileikar
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð tölvukunnátta
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áræðni og dug til að vera leiðandi í uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu. Félagsmálastjóri vinnur náið með nýrri sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra. Starfið krefst ferðalaga um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf og bíl til umráða.Staðsetning meginsstarfsstöðvar félagsþjónustunnar verður ákveðin í samráði við nýjan félagsmálastjóra.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til skrifstofu Strandabyggðar Hafnarbraut 19 510 Hólmavík og í síma 4513510 eða á netfangið holmavík@holmavík.is
Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 12 desember næstkomandi.