Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 29. apríl 2015
Prenta
Bifreiðaskoðun 4 - 8 maí.
Færanlega skoðunarstöð Frumherja hf. verður staðsett á Hólmavík frá mánudeginum 4. maí til föstudagsins 8. maí 2015. Tekið er á móti öllum greiðslukortum(kredit og debet), hvort tveggja er háð því að GSM samband sé í lagi. Mælst er til þess að menn komi með ökutæki með númer sem enda 1 til 7 í fyrri ferð,en í seinni ferð sem ekki er búið að ákveða,með endastafi 8,9,eða 0.
Frumherji hf. vill benda viðskiptavinum sínum á skoðunarstöðina í Búðardal þar sem skoðað er 10 sinnum á ári 2 daga í senn,tímapantanir eru í síma: 570 9090.
Sími í færanlegu skoðunarstöð Frumherja er 570 9214 og GSM 893 3900.