Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 21. september 2017
Prenta
Borgarísjaki sést.
Svohljóðandi hafísfrétt var send Veðurstofu Íslands. Hafísdeild, frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík um 14:30 í dag: Hafísfrétt frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík kl 14:30:
Borgarísjaki nokkuð stór sést frá stöðinni. Jakinn er ca 20 til 22 km NNA af Reykjaneshyrnu og ca 7 til 8 km austur af Sæluskeri (Selskersvita). Jakabrot geta verið í kringum jakann. Veðurathugunarmaður setti ör fyrir ofan þar sem jakinn er, því hann sést ílla.