Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 2. desember 2020
Prenta
Breytt fyrirkomulag á veðurfregnum í hádegisútvarpi Rásar 1 á RÚV.
Í gær 1. desember, hófst nýr fréttaskýringaþáttur, Hádegið, í Hádeginu á Rás 1 hjá RÚV. Lestur veðurfregna frá Veðurstofunni kl. 12.40 heyrir því sögunni til. Sá veðurfregnatími hefur að mestu verið endurtekning á spám sem lesnar eru kl. 10.03 og verður sá tími óbreyttur. Veðurspá og viðvaranir verða engu að síður áfram hluti af hefðbundnum hádegisfréttatíma kl. 12.20 og með nýja þættinum á Rás 1 sjáum við fram á áframhaldandi gott samstarf við RÚV um miðlun hverskonar upplýsinga frá Veðurstofunni, segir á vef Veðurstofu Íslands.