Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 18. mars 2015
Prenta
Byrjað að opna norður.
Vegagerðin á Hólmavík byrjaði að opna veginn norður í Árneshrepp í morgun. Mokað er frá Bjarnarfirði sunnanmegin frá og frá Kjörvogshlíð norðanmegin frá. Útilokað er að segja til um hvenær opnist norður segja vegagerðarmenn,en svona varla á fyrsta degi. Þetta er tveim dögum fyrr en reiknað var með,en hinn frægi 20.mars er ekki fyrr en á föstudaginn.