Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 15. júní 2010
Prenta
Ferming í Árneskirkju á sunnudag.
Fermingarguðsþjónusta verður í Árneskirkju sunnudaginn 20. júní, kl. 14:00.Fermd verður Unnur Sólveig Guðnadóttir.
Unnur Sólveg vill láta ferma sig í sveitinni þar sem hún ólst sem mest uppí enda dvelur hún öll sumur sem mest í Bæ í Trékyllisvík hjá ömmu sinni.
Foreldrar Unnar Sólveigar eru Jensína Hjaltadóttir frá Bæ í Trékyllisvík og Guðni Hauksson en þau búa í Reykjavík.