Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. mars 2010
Prenta
Frétt frá hugmyndafundinum um áframhaldandi byggð í Árneshreppi.
Fjölmargar áhugaverðar hugmyndir komu fram á opnum hugmyndafundi sem haldinn var á Hilton hótelinu 18 mars síðastliðinn í Reykjavík um leiðir til að efla byggð í Árneshreppi á Ströndum. Áhugasamt fólk á aldrinum 20 - 70 ára fjölmennti á fundinn til að ræða tækifæri á þessu einstaka svæði. Eftir öflugt og skemmtilegt hugarflug fundargesta var hugmyndunum skipt niður í afþreyingu, atvinnumál, ferðaþjónustu, orkumál, samfélagsmál og samgöngur og málaflokkunum gerð ítarlegri skil. Markmið fundarins var fyrst og fremst að vekja velunnara Árneshrepps sem ekki búa á svæðinu til umhugsunar um hvað þeir geta lagt af mörkum til að styrkja byggðina. Einnig að mynda tengslanet áhugasamra um eflingu byggðar í hreppnum og síðast en ekki síst að fara á hugarflug og safna fjölbreyttum hugmyndum þar sem orð eru til alls fyrst. Áhugasamt fólk um áframhaldandi byggð í Árneshreppi stóð að fundinum.
Myndirnar sem eru hér með eru frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur.
Myndirnar sem eru hér með eru frá Ingibjörgu Valgeirsdóttur.