Fyrirlestur um netfíkn.
Sálfræðingurinn Eyjólfur Örn Jónsson fjallar um hættur Internetsins, hverjir séu í hættu með að „ánetjast" notkun sinni, hver einkenni ofnotkunar eru, hvað slík notkun getur haft í för með sér og hvað foreldrar og fagfólk getur gert til að fyrirbyggja vandann og takast á við hann. Eftir fyrirlesturinn verða umræður og fyrirspurnir. Allir áhugasamir - foreldrar, börn, unglingar, ömmur og afar - eru hvattir til að mæta á fyrirlesturinn. Frítt er inn á fyrirlesturinn. Fyrirlesturinn fer fram í félagsheimilinu á Hólmavík miðvikudaginn 24. október kl:19:30 2012. Tómstundafulltrúi Strandabyggðar stendur fyrir fyrirlestrinum. Styrktaraðilar eru Strandabyggð, Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík og Héraðssamband Strandamanna.