Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 14. febrúar 2021 Prenta

Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða.

Frá Skjaldborgarskrúðgöngunni á lokakvöldinu. Kristín Andrea í broddi fylkingar
Frá Skjaldborgarskrúðgöngunni á lokakvöldinu. Kristín Andrea í broddi fylkingar
1 af 3

Vestfjarðastofa hefur veitt viðurkenningar fyrir fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða úr hópi þeirra verkefna sem hlutu styrk úr sjóðnum árið 2020.

Í flokki nýsköpunarverkefna var það Sýslið, miðstöð skapandi greina á Hólmavík sem hlýtur viðurkenninguna Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða árið 2020.

Hugmyndin með Sýslinu er að stofnsetja miðstöð skapandi greina í gamla sýslumannshúsinu á Hólmavík. Sýslið - Verkstöð er klæðskerasaumuð lausn sem býður upp á fjölþætta þjónustu sem hefur skort á svæðinu. Sýslið - Verkstöð verður rekið sem einkahlutafélag Ástu Þórisdóttur og Svans Kristjánssonar sem eru eigendur og íbúar hússins. Verkefnið getur haft mikil jákvæð áhrif á skapandi starf á svæðinu með fjölbreytilegri og  vel útbúinni aðstöðu og einnig með gestadvöl hönnuða og listamanna sem munu auðga starfsemina og menningarlíf á svæðinu með sýningum og viðburðum.

Sýslið er að einnig að finna að vefnum www.strandir.is sem fer í loftið innan skamms.

Á sviði menningar hlýtur heimildahátíðin Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda viðurkenninguna Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs 2020. Skjaldborg hefur verið haldin síðan árið 2007. Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir, skoðar heimildamyndagerð á heimsvísu og skapar umræðu- og þróunarvettvang fyrir verkefni, leikstjóra og áhugafólk á Íslandi. Hátíðin er eini sérhæfði vettvangurinn fyrir íslenskar heimildamyndir hér á landi og má þess vegna segja að Skjaldborgarbíó á Patreksfirði sé orðið heimili íslenskra heimildamynda enda hjálpar umhverfið og fólkið á staðnum við að skapa aðstæður sem mynda einstaka stemningu og samveru sem verður til á hátíðinni.

Það krefst mikils undirbúnings og góðrar skipulagningar að halda hátíð á borð við  Skjaldborg. Vegna Covid reyndist ekki unnt að halda hátíðina á Patreksfirði á árinu 2020, henni var frestað í tvígang og þrautalendingin var að halda hátíðina í Bíó Paradís í Reykjavík. Tengslin við Patreksfjörð eru þó sterk og verið er að skipuleggja að koma með allar helstu myndir hátíðarinnar og sýna á Patreksfirði á árinu. Þá munu leikstjórar sitja fyrir svörum að sýningum loknum.

Skjaldborg er handhafi Eyrarrósarinnar 2020. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefnum utan höfuðborgarsvæðisins við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Ljósmyndir:

Syslid.jpg: Aðstandur Sýslsins á Hólmavík. Frá vinstri: Bára Melsted, Silja Ástudóttir, Ásta Þórisdóttir og Svanur Kristjánsson

Stjórn með Eyrarrós.jpg: Stjórn Skjaldborgar við afhendingu Eyrarrósarinnar 2020. Frá vinstri: Karna Sigurðardóttir, Kristín Andrea Þórðardóttir í miðið og Helga Rakel Rafnsdóttir fremst.

Skjaldborg_skrudganga.jpg: Skjaldborgarskrúðgöngunni á lokakvöldinu. Kristín Andrea í broddi fylkingar. Ljósmynd: Hrund Atladóttir

Nánari upplýsingar:

Sýslið: Ásta Þórisdóttir, s 663 5319

Skjaldborg: Kristín Andrea Þórðardóttir, s. 820 3646

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Krossnes-20-10-2001.
  • Séð til Drangaskarða 15-03-2005.
  • Árnesstapar, séð til NV. Krossnes í baksýn. 20-01-2017.
  • Eyri við Íngólfsfjörð-24-07-2004.
Vefumsjón