Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 2. apríl 2013
Prenta
Fyrsti báturinn búin að leggja grásleppunet.
Á laugardaginn 30. mars lagði fyrsti grásleppubáturinn net,en það var báturinn Stekkur ST 70. Von er á fleiri bátum sem ætla að stunda grásleppuveiðar frá Norðurfirði,það eru allavega bátarnir Sörli ÍS 66 og Unnur ÍS 300,sem koma að vestan,þá mun heimabáturinn Óskar III ST 40 leggja einhver net,en það er Gunnsteinn Gíslason sem á þann bát,en Gunnsteinn mun einnig verka grásleppuhrognin af hinum bátunum. Grásleppuveiðar máttu hefjast 20. mars síðastliðinn. Frámuna veðurblíða hefur verið nú undanfarið og gott sjóveður hefur verið síðustu daga.